Fréttir

Page 1

Fyrst ég gat þetta, þá getur þú þetta líka!

Það eru forréttindi að starfa innan fullorðinsfræðslunnar, umgangast fólk sem þyrstir í meiri þekkingu og vill styrkja sig þannig í leik og star . Það er ekki síður skemmtilegt að fylgjast með því hvernig einstaklingarnir í námshópunum okkar e ast dag frá degi og hvetja sjálfan sig og náungann áfram í þekkingarö uninni. Það eru margir sem standa í þeim sporum að virkilega langa til að læra meira, en vantar hvatninguna til að taka skre n í þá átt. Þessi til nning er ósköp skiljanleg og eðlileg. Fyrir tæpum áratug var Fræðslumiðstöð atvinnulífsins stofnuð, en Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins stóðu að stofnun hennar. Þarna var tekið stórt skref í þá átt að byggja upp ákveðið menntaker innan fullorðinsfræðslunnar og með því móti að koma til móts við þá fjölmörgu einstaklinga á vinnumarkaði sem ekki hafa lokið framhaldsskólapró . Árið 2006 gerði Fræðslumiðstöð atvinnulífsins samning við símenntunarmiðstöðvarnar, þess efnis að bjóða upp á ákveðin námstækifæri á þeirra þjónustusvæði og einnig að bjóða upp á náms og starfsráðgjöf. Í gegnum Fræðslumiðstöðina er fjármagni veitt til að greiða niður þessa þjónustu, enda lagt upp með að gera fólki kleift að sækja sér þessa þekkingu án þess að kosta miklu til í krónum talið. Við hjá Símenntunarmiðstöðinni

höfum boðið upp á fjölda námstækifæra sem hafa verið vel sótt. Mörg dæmi höfum við um að þátttakendur hjá okkur ha haldið áfram á menntabrautinni og/eða styrkt stöðu sína á vinnumarkaði. Við hefðum ekki getað boðið upp á þessa þjónustu nema fyrir ötula

framgöngu stéttarfélaganna innan ASÍ sem hafa lagt þunga áherslu á menntaþáttinn í sinni kjarabaráttu. Auk þess hefur Símenntunarmiðstöðin verið í mjög góðu samstar við Stéttarfélag Vesturlands og m.a. má nefna að Símenntunarmiðstöðin fékk styrk frá félaginu til að þróa og halda menntasmiðju kvenna, og verið samstarfsaðili í umsóknum um styrk í karlasmiðju, frumkvöðlasmiðjur og nú síðast er félagið samstarfsaðili okkar í umsókn til Inn ytjendaráðs um þróun raunfærnimats fyrir inn ytjendur. Starfsfólk félagsins hefur líka lagt okkur lið við að halda fræðslufyrirlestra fyrir atvinnuleitendur. Þetta samstarf skiptir okkur hjá Símenntun mjög miklu og hvetur okkur áfram til að vinna að frekari samstarfsverkefnum við félagið. Það geta allir lært, en hvert okkar notar þá aðferð sem okkur nnst best. Hvort sem það er verknám bóknám eða blanda af hvoru tveggja þá kallar umhver ð, sem við bú-

um við, á aukna þekkingu, færni og hæfni. Við hjá Símenntun störfum í þágu íbúa á Vesturlandi. Við bjóðum upp á fjölda námstækifæra, náms og starfsráðgjöf, þjónustum fjarnema, gerum fræðsluáætlanir innan fyrirtækja og veitum upplýsingar um nám og námskeið. Ef þig langar að vita meira um þjónustu okkar þá er vefurinn okkar www.simenntun.is og síminn 437 2390 og við bendum einnig á vef Fræðslumiðstöðvarinnar www.frae. is Við hlökkum til að heyra frá þér og óskum þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Fh. Starfsfólks Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi Inga Dóra Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri

Frost: Vetrarmynd tekin af Áslaugu Þorvaldsdóttur


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Fréttir by Íbúinn - Issuu