Ástarskáldið og Blótgoðar Sýningum lýkur í febrúar miðapantanir í síma 437 1600
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
6. tbl. 7. árgangur
9. feb. 2012
112 dagurinn Á 112 deginum þann 11. febrúar næstkomandi munu viðbragðsaðilar í Borgarbyggð standa fyrir opnum degi við Hjálmaklett Menntaog menningarsetur Borgarbyggðar. Þar verða björgunarsveitir héraðsins, slökkvilið Borgarbyggðar, lögreglan og sjúkrautningaaðilar með kynningu og sýningu á sínum tækjakosti. Fólki verður gert kleyft að sjá tækin í notkun. Borgarfjarðardeild Rauða krossins mun verða með afhendingu á sérstakri viðurkenningu á skyndihjálpar afreki síðasta árs. Einnig mun fólki bjóðast örkennsla í skyndihjálp. Rauða kross búðin verður með sérstaka afmælisopnun frá klukkan 11:0015:00 en hún er einmitt 1 árs þennan dag, verður í tilefni þess 20% afsláttur af öllum vörum. Dagskráin hefst með skrúðakstri viðbragðsaðila þar sem ekið verður með ljósum frá Brákarey klukkan 13:00 að Hjálmakletti. Stendur dagskráin til klukkan 16:00.
Stimplar Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360
Snjóbíll Björgunarsveitarinnar Oks keyrður upp á vörubílspall eftir útifjör Björgunarsveitanna í Skorradal síðasta sumar. Halldór Sigurðsson á Þorvaldsstöðum er ökumaður. Mynd: OHR
Íþrótta- og uppskeruhátíð UMSB Íþrótta- og uppskeruhátíð UMSB fer fram laugardaginn 18. febrúar nk. Keppni hefst kl. 10.00 en um kl. 12.30 verður gert hlé á keppni og veittar viðurkenningar fyrir framfarir og afrek ársins 2012 auk þess sem íþróttamaður ársins 2012 verður krýndur. Upplýsingar um keppnisgreinar, aldursflokka, tímasetningar og fleira má finna á heimasíðu UMSB; www.umsb.is