34. tbl Íbúinn

Page 1

Grænmetishlaðborð í hádeginu

ÍBÚINN

frétta- og auglýsingablað

34. tbl. 6. árgangur

1. des 2011

Borgfirðingar dansa á Broadway

Nemendur í Dansskóla Evu Karenar í Borgarnesi sýndu fjölbreytt tilþrif á danssýningu og -keppni á Broadway um liðna helgi og voru jafnvíg hvort heldur þau sýndu nútímadans eða glæsilega samkvæmisdansa. Hér eru þau að sýna nútímadans eftir Elvu Rut Guðlaugsdóttur listdanskennara. OHR

Aukatónleikar vegna aðsóknar Mikil aðsókn var að tónleikum KK og Ellenar í Landnámssetrinu síðasta laugardag en þau héldu þar tvenna aðventutónleika. Sannkölluð jólastemning sveif y r og þau systkinin krydduðu sönginn með skemmtilegum sögum og spjalli. Þar sem uppselt var á seinni tónleikana og margir þurftu frá að hverfa verða haldnir aukatónleikar á morgun, föstudaginn 2. desember kl. 20.00. Getum við aðstoðað þig?

Fjölritunar- og útgáfuþjónustan sími: 437 2360

Jólabingó í Lyngbrekku

Kvenfélag Álftaneshrepps heldur nú jólabingó í þriðja sinn, þriðja árið í röð. Síðastliðin tvö ár hefur Kvenfélagið haldið jólabingó þar sem ágóðinn hefur farið til MS félagsins annars vegar og Borgarfjarðardeildar Krabba meins félagsins

hins vegar. Nú stendur til að styrkja skammtímadvölina í Holti. Bingóið verður haldið sunnudagskvöldið 4. desember kl. 20:00 í Lyngbrekku. Margir glæsilegir vinningar eru í boði og vonast kvenfélagskonur til að sjá sem esta.

Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifibréf - Boðsbréf - Ritgerðir - Skýrslur Fjölskyldumyndirnar á dagatöl og jólakort


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.