Hollt & gott í hádegi alla daga!
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
24. tbl. 7. árgangur
Vatnsveita í Reykholtsdal Um helgina verða boðnar út framkvæmdir við nýja vatnsveitu í Reykholtsdal. Virkjað verður vatnsból við mynni Rauðsgils. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í byrjun september og verði lokið um áramót. Reykdælir ættu því loks að fara að sjá fyrir endann á langvarandi kaldavatnsskorti.
2. ágúst 2012
Landsmót Skáta
Foreldrar og fullorðnir skátar lögðu gjörfa hönd á plóg á Landsmóti Skáta sem haldið var á Úlfljótsvatni í síðustu viku og mátti vart á milli sjá hvorir skemmtu sér betur; ungu skátarnir eða þeir fullorðnu. Þrjú skátafélög sameinuðust um tjaldbúð að þessu sinni, Skátafélag Akraness og Skf. Örninn í Grundarfirði ásamt Skátafélagi Borgarness og gekk samstarfið afar vel. Mynd: OHR
Borgarprestakall Messa í Borgarkirkju sunnudag 5. ágúst kl. 14.00 Verið hjartanlega velkomin til helgihalds um verslunarmannahelgi Sóknarprestur