Íbúinn

Page 1

Hollt & gott í hádegi alla daga!

ÍBÚINN

frétta- og auglýsingablað

13. tbl. 7. árgangur

18. apríl 2012

Tríó tónvilltra, eins og þau kalla sig: Inga Björk Bjarnadóttir lengst til vinstri ásamt félögum sínum, þeim Jóhanni Snæbirni Traustasyni og Birnu Kristínu Ásbjörnsdóttur. En þau voru meðal þeirra fjölmörgu flottu ungu tónlistarmanna sem fram komu á tónleikunum. Mynd: Olgeir Helgi

Glæsileg ungmenni

Fimmtudaginn 12. apríl sl. stóð Inga Björk Bjarnadóttir fyrir tónleikum í Hjálmakletti. Tilgangurinn var að safna fé svo hún gæti farið með skólasystkinum sínum í MB í útskriftarferð í vor. Inga Björk sem er 19 ára Borgfirðingur hefur verið bundin við hjólastól frá þriggja ára aldri vegna vöðvarýrnunarsjúkdómsins SMA. Hún þarf að hafa tvo aðstoðarmenn með sér til að geta farið og kostnaðinn af

því ber hún sjálf auk kostnaðar vegna leigu á hjálpartækjum o.fl. þegar út er komið. Tónleikarnir voru afar vel sóttir og atriðin voru hvert öðru betra. Oft mátti sjá tár á hvarmi tónleikagesta enda var stemmningin afar hlýleg. Inga Björk á svo sannarlega heiður skilinn fyrir að sýna tónleikagestum hvað við eigum marga, fjölhæfa og glæsilega unga tónlistarmenn í héraðinu. Rétt er að ítreka

söfnunarreikning Ingu Bjarkar, en bankaupplýsingarnar eru: Kt. 270993-3469 Reikn: 0354-03-44 44 40 Nú gefst enn kostur á að hlýða á unga tónlistarmenn í héraði. Á sumardaginn fyrsta kl. 17.00 verða tónleikar í Hjálmakletti sem liður í að fjármagna flygilkaup. Þessir tónleikar eru undir yfirskriftinni Er sumarið kom yfir sæinn. Ungt og efnilegt listafólk mun koma fram og leika og syngja lög af ýmsum toga.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.