MATREIÐSLUKEPPNI BORGARLEIKHÚSSINS 2026
Björgvin Már Pálsson – Fryggðarfóður flagarans Appelsínu- og rósmarín kjúklingur með unagi og kóríander sósu, ásamt chili-parmesan kartöflum
Uppskrift miðast við 4-6, fyrir utan sósurnar og saltið þar sem þar er alltaf nægur afgangur af því sem borðast á næstu 10.dögum. Þessi uppskrift hefur verið reynd á þorsk, stórlúðu, löngu og kjúklingabringur með einstaklega góðum árangri. Gengið er út frá Kjúklingabringunni í þessu tilfelli, marineringin er sú sama nema með þær hef ég verið að setja þær í bað, það hefur ekki verið gert við fiskinn hingað til sökum ótta. • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • •
4-6 kjúklingabringur Rósmarínsalt, sjá ínnihaldslýsingu neðar Unagi, sjá innihaldslýsingu síðar Kóríandersósa, sjá innihaldslýsingu síðar 1-2 sítrónur Hvítlaukur Rósmarín knippi Kóríander Maldon salt Sykur Hunang 1-2 Lime Kóríander knippi Sýrður rjómi, ein dolla 1-2 appelsínur Kartöflur Laukur Rauðlaukur Salthnetur jarðaber og/eða bláber fetaostur, þarf ekki en er gaman ef hann er í boði