

FERMINGAR

Forsíða: Ljósmyndari: Marinó Flóvent
Módel: Eva Arnarsdóttir, Tinna Karen Kostic
Gallerí 17
Beautyklúbburinn 4.tbl
Ritstjórn: Kristín Ása Brynjarsdóttir
Hönnun & uppsetning:
BEAUTY KLÚBBURINN
Við hjá Beautyklúbbnum höfum sett saman efni fyrir þau sem eru að undirbúa fermingu og viljum hjálpa til við að finna það sem þarf til að gera fermingardaginn ógleymanlegan. Fermingardagurinn er einstakur, og við vitum að val á vörum fyrir þann dag getur verið áskorun – bæði fyrir fermingarbörn og foreldra. Þess vegna höfum við tekið saman bestu snyrti- og förðunarvörurnar sem eru tilvaldar fyrir þennan aldur.
Í blaðinu má finna hugmynd að léttri og fallegri förðun fyrir fermingardaginn, viðtal við fermingarbörn, umfjöllun um vörur sem henta vel fyrir fermingaraldur, vinsæla ilmi og fróðleik um vörur sem hafa notið mikilla vinsælda.
Við vonum að blaðið nýtist bæði fermingarbörnum og aðstandendum þeirra sem leiðarvísir, innblástur og jákvæð áminning um að fegurð snýst fyrst og fremst um að líða vel í eigin skinni.
Við óskum öllum fermingarbörnum hjartanlega til hamingju með komandi tímamót og vonum að dagurinn verði frábær.
Nokkur af þekktustu vörumerkjum Beautyklúbbsins eru:






Módel:
Förðun:
Kjóll:
Ljósmyndari: Marinó Flóvent
Eva Arnarsdóttir
Viktorija Leskyte
Gallerí 17
EVA
ARNARSDÓTTIR
VIÐ FENGUM HANA TIL ÞESS AÐ SVARA NOKKRUM SPURNINGUM FYRIR OKKUR
Nafn: Eva Arnarsdóttir
Aldur: 13
Skóli: Norðlingaskóli
Fermingardagur: 22. mars 2026
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frístundum þínum, t.d. persónuleg áhugamál eða tómstundir.
Mér finnst skemmtilegast að vera í fótbolta og vera með fjölskyldunni minni og vinum.
Áttu þér einhvern draum sem þú myndir vilja láta rætast?
Hvernig telur þú að ungt fólk geti haft áhrif á framtíðina eða breytt heiminum til hins betra?
Ég held að ungt fólk geti gert heiminn að betri stað með
því að vera góð við alla.
Ertu með einhver persónuleg gildi sem eru þér mikilvæg?
“ég reyni að vera góð við fólkið í kringum mig og reyni að vera jákvæð.”
Já ég á mér draum um að verða atvinnukona í fótbolta og spila með landsliðinu.
Áttu þér fyrirmynd eða einstakling sem þú lítur sérstaklega upp til og afhverju?
Fyrirmyndirnar mínar eru mamma mín af því hún er mjög góð og skemmtileg og pabbi minn af því hann er mjög fyndinn og skemmtilegur.
Já ég reyni að vera góð við fólkið í kringum mig og reyni að vera jákvæð. Pælir þú mikið í förðun eða húðumirðu?
Ég þvæ húðina mína langflesta morgna og kvöld. Ég set dagkrem á mig eiginlega alla morgna en ég er ekki farin að mála mig oft, einstaka sinnum mála ég mig smá.
Eru einhverjar vörur frá Beautyklúbbnum sem þú notar eða ert spennt fyrir?
Það sem ég hef verið að nota er Lumi Glotion, Sky High maskari og Lifter Glaze Lip varasalvi. Ég er spennt fyrir
Buttermelt kinnalitunum og sólarpúðrinu frá NYX.
FERMINGAR FÖRÐUN
VÖRURNAR Í FÖRÐUN EVU










1. Maybelline Fit Me Nude BB krem 2. L’Oreal Paris Paradise Le Shadow Stick 3. Maybelline Lasting Fix Spray 4. Maybelline Sun Kisser 5. Maybelline Lifter Stix 6. Maybelline Lash Sensational Sky High maskari
NYX Professional Makeup Brow Glue
Maybelline Lifter Liner
Maybelline Lifter Glaze
Horfðu á förðunina


Förðun:
Kjóll:
Ljósmyndari: Marinó Flóvent
Módel: Tinna Karen Kostic
Hera Hlín Svansdóttir
Gallerí 17
TINNA KAREN KOSTIC
TINNA TÓK ÞÁTT Í FERMINGARMYNDATÖKUNNI OKKAR Í ÁR
OG VIÐ FENGUM HANA TIL ÞESS AÐ SVARA NOKKRUM SPURNINGUM FYRIR OKKUR
Nafn: Tinna Karen Kostic
Aldur: 14
Skóli: Réttarholtsskóli
Fermingardagur: 22. mars 2026
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frístundum þínum, t.d. persónuleg áhugamál eða tómstundir.
Vera með vinum og fótbolti, spila með 4fl. Víkings.
Áttu þér einhvern draum sem þú myndir vilja láta rætast?
Langar að ferðast til Rio í Brasiliu og ferðast víðar um heiminn.
fram við þig. Þora að segja skoðanir sínar. Vera tilbúin að hlusta á aðra og virða sjónarhorn annarra.
Ertu með einhver persónuleg gildi sem eru þér mikilvæg?
Koma fallega fram við aðra og hafa metnað fyrir því sem ég geri og ná markmiðum mínum.
“Vera tilbúin að hlusta á aðra og virða sjónarhorn annarra”
Áttu þér fyrirmynd eða einstakling sem þú lítur sérstaklega upp til og afhverju?
Sveindís Jane knattspyrnukona af því að hún er góður knattspyrnumaður og með heilbrigðan lífsstíl.
Hvernig telur þú að ungt fólk geti haft áhrif á framtíðina eða breytt heiminum til hins betra?
Koma fallega fram við aðra, eins og þú vilt að aðrir komi
Pælir þú mikið í húðumirðu?
Já nokkuð mikið myndi segja. Ég hugsa vel um húðina mína kvölds og morgna, þríf húðina og næri. Nota maskara, bronzer og hyljara dags daglega í förðunarvörum.
Eru einhverjar vörur frá Beautyklúbbnum sem þú notar eða ert spennt fyrir?
Ég nota alltaf Telescopic maskarann frá L’Oréal, L’Oréal Paris Infallible setting mist, Garnier augnhreinsi, Fit me hyljarann frá Maybelline og Buttermelt bronzerinn frá NYX. Ég nota mikið CeraVe og La Roche Posay húðvörurnar og líka Elvital sjampó/hárnæringu og þurrsjampó.
FERMINGAR FÖRÐUN
VÖRURNAR Í FÖRÐUN TINNU











L’Oréal Paris True Match Serum farði
Makeup Plump Finish Setting Spray
Maybelline Fit Me Concealer
Makeup Buttermelt Bronzer
Maybelline Fit Me
+ Poreless Powder
Horfðu á förðunina


Ljósmyndari: Marinó Flóvent
Módel: Valdimar Helgi Bryndísarson Sævarsson
Fatnaður: Gallerí 17
VALDIMAR HELGI BRYNDÍSARSON
SÆVARSSON
VALDIMAR TÓK ÞÁTT Í FERMINGARMYNDATÖKUNNI OKKAR
Í ÁR OG VIÐ FENGUM HANN TIL ÞESS AÐ SVARA NOKKRUM
SPURNINGUM FYRIR OKKUR
Nafn: Valdimar Helgi Bryndísarson Sævarsson
Aldur: 14 ára
Skóli: Grunnskólinn í Hveragerði
Fermingardagur: 24. maí 2026
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frístundum
þínum, t.d. persónuleg áhugamál eða tómstundir.
Vera með vinum mínum og spila fótbolta.
Áttu þér einhvern draum sem þú myndir vilja láta rætast?
Eiga góða framtíð.
Hvernig telur þú að ungt fólk geti haft áhrif á
framtíðina eða breytt heiminum til hins betra?
Við erum snjallari með tæki en eldri kynslóðin.
Við horfum aðeins öðruvísi á hlutina, við höfum annað sjónarhorn.
“Við horfum aðeins öðruvísi á hlutina, við höfum annað sjónarhorn.”
Áttu þér fyrirmynd eða einstakling sem þú lítur sérstaklega upp til og afhverju?
Foreldra mína. Þau eru góðhjörtuð.
Ertu með einhver persónuleg gildi sem eru þér mikilvæg?
Ég vil vera heilbrigður og hraustur.
Pælir þú mikið í förðun eða húðumirðu?
Já núna, ég er kominn með unglingabólur og langar að losna við þær.
Mér finnst líka gaman að lykta vel.
Eru einhverjar vörur frá
Beautyklúbbnum sem þú notar eða ert spenntur fyrir?
Ég þekki ekki nógu vel til hans en er alltaf til í að prófa eitthvað nýtt og sniðugt.
HÚÐ UMHIRÐA
Á fermingaraldri er húðin enn að þroskast og því mikilvægt að nálgast húðumhirðu af varfærni. Þegar fermingarbörn byrja að nota húðvörur er best að halda hlutunum einföldum og velja mildar, hreinar vörur sem styðja við náttúrulegt jafnvægi húðarinnar.
Í flestum tilfellum nægir einföld rútína: mild hreinsun og létt rakakrem sem hentar ungri húð. Mikilvægt er að forðast sterkt ilmefni og virk innihaldsefni sem ekki eru ætluð þessum aldri, þar sem húðin hefur yfirleitt ekki þörf fyrir slíkt.
Vörur frá CeraVe henta einstaklega vel sem fyrsta húðvörumerkið fyrir þau. Þær eru hannaðar til að vera mildar en áhrifaríkar og viðhalda húðinni mjúkri og án óþarfa áreitis.
Húðumhirða á þessum aldri á fyrst og fremst að snúast um vellíðan, góða rútínu og að hlúa vel að húðinni, ekki um flóknar lausnir eða fjölda vara. Með því að velja rétt frá byrjun, eins og hreinar og húðvænar vörur frá CeraVe, er verið að leggja góðan grunn að heilbrigðri húð til framtíðar.
CeraVe er öruggt, áhrifaríkt og á hagstæði verði fyrir unglinga. Hvort sem húðin er þurr, feit, bólótt eða viðkvæm, þá eru til vörur sem henta. Ef þörf er á ráðgjöf við val á vörum, þá er mælt með að leita til fagfólks í næsta apóteki eða í snyrtivörudeild Hagkaupa.
FYRIR FEITA HÚÐ




Mildur hreinsir sem fjarlægir óhreinindi án þess að þurrka húðina.
Veitir djúpan raka og styrkir ysta lag húðar.
CeraVe Blemish Control línan er hönnuð fyrir þá sem eiga í vandræðum með bólur og ójafnan húðlit. Hún inniheldur virk efni sem hreinsa húðina og koma í veg fyrir bólumyndun án þess að skaða húðina.
Inniheldur salicýlsýru (BHA) sem hreinsar svitaholur og dregur úr bólum og inniheldur niacinamide sem róar húðina og dregur úr roða.
BÓLUPLÁSTRAR
Fermingardagurinn er stór dagur og eðlilegt að vilja líða vel og vera sjálfsörugg(ur). Húðin getur þó stundum tekið óvæntum breytingum, sérstaklega á þessum aldri. Þá geta bóluplástrar verið frábær lausn.
Bóluplástrar eru þunnir og mildir plástrar sem eru settir beint á bólur. Þeir hjálpa til við að draga úr roða, vernda húðina og styðja við náttúrulegt jafnvægi hennar, oft á meðan sofið er en einnig hægt að nota yfir daginn. Þeir eru auðveldir í notkun og henta vel bæði fyrir daginn sjálfan og dagana á undan.
Bóluplástrar geta verið góð viðbót við daglega húðumhirðu og hjálpa fermingarbörnum að mæta stóra deginum afslöppuð, örugg og með vellíðan í fyrirrúmi.
Við bjóðum upp á þrjár vandaðar tegundir bóluplástra:

NEUTROGENA CLEAR & DEFEND
Markviss lausn sem vinnur á bólum á skilvirkan hátt. Þessir ofurþunnu hydrocolloid plástrar draga úr stærð bólunnar og verja hana fyrir áreiti, sem minnkar líkur á að ör myndist. Plástrarnir draga í sig óhreinindi sem koma fram sem sýnileg merki á plástrinum þegar hann er fjarlægður.

GARNIER
Einföld og áhrifarík umhirða. Plástrarnir eru einstaklega þunnir og sjálflímandi. Plástrarnir þurrka upp og minnka sýnileika bólunnar strax eftir fyrstu notkun.

Þunnir og næstum ósýnilegir bóluplástrar sem draga úr sýnileika óhreininda í húð og umframfitu eftir aðeins eina notkun. Þeir hjálpa til við að styrkja húðvarnarlagið með þremur nauðsynlegum ceramíðum og minnka bæði stærð og roða óhreininda án þess að skilja eftir för á húðinni.
MEÐ VIÐ MÆLUM
Á fermingaraldri byrja mörg að spá meira í húðumhirðu, hári og snyrtivörum og þá er gott að hafa aðgang að vörum sem eru bæði einfaldar í notkun og henta vel fyrir þennan aldur. Hvort sem verið er að prófa sig áfram eða byggja upp góða rútínu, skipta gæði og réttar vörur miklu máli.
Hér höfum við tekið saman fjölbreytt úrval af vörum sem henta vel fyrir þennan aldur.
GRADUAL TAN SJÁLFBRÚNKU
VÖRUR FRÁ BONDI SANDS
Gradual mjólkin inniheldur Aloe Vera og E vitamin, Gradual Tan nærir húðina og gefur henni heilbrigðan ljóma og byggir rólega upp náttúrulega sólkyssta brúnku. Einnig er til andlitskrem úr sömu línu en það er mjög ríkt af innihaldsefnum sem gefa húðinni djúpan raka og náttúrulega brúnku.
HYDRATING CLEANSER FRÁ CeraVe
Mildur andlitshreinsir sem hentar öllum húðgerðum. Hreinsirinn freyðir ekki og fjarlægir allar gerðir óhreininda og förðunarvara. Það er mikilvægt fyrir unga húð að huga að hreinlæti og að hreinsa húðina er eitthvað sem öll þurfa að læra sem fyrst. Með því að hreinsa húðina styðjum við hennar starfsemi. Þessi hreinsir frá CeraVe er ríkur af keramíðum og hýalúronsýru og passar upp á að taka ekki raka frá húðinni heldur frekar styrkja rakastig hennar. Þessi hreinsir hentar öllum húðgerðum og öllum aldri.


GARNIER MICELLAR HREINSIVATN
Þetta margverðlaunaða hreinsivatn fjarlægir förðun, óhreinindi og umframolíu í einu skrefi án þess að þurfa að skola eða nudda húðina harkalega. Formúlan er mild og hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmri húð, sem gerir það að kjörnum valkosti fyrir þá sem eru að byrja að sinna húðumhirðu. Micellar vatnið skilur húðina eftir fríska, hreina og mjúka – fullkomið til daglegrar notkunar, bæði á morgnana og kvöldin.


CeraVe DAGKREM
Létt andlitskrem frá CeraVe sem inniheldur mikið magn af keramíðum, híalúronsýru og sólarvörn. Fyrir ungan aldur skiptir mestu máli að fá góðan raka og að sjálfsögðu ætti að nota sólarvörn daglega til að hlífa húðinni við áreiti af völdum útfjólublárra geisla en sólin getur ýtt undir vandamál sem eru undirliggjandi í húðinni okkar. Kremið er sérstaklega einfalt og formúlan án allra óæskilegra aukaefna. Kremið er bæði til með SPF50 og án sólarvarnar en það krem er t.d. gott að nota á kvöldin.

Dr. Teal’s Shea Sugar Body Scrub er dásamlegur sykurskrúbbur sem skrúbbar húðina varlega og gerir yfirborð hennar sléttara.
Inniheldur ilmkjarnaolíur sem hjálpa til við að róa hugann ásamt shea smjöri sem veitir húðinni raka.
DR. TEAL’S SKRÚBBUR

REAL TECHNIQUES FÖRÐUNARSVAMPUR
Vinsælasti förðunarsvampur heims, sem er frábær með fljótandi farða. Gefur ljómandi áferð og létta til miðlungs þekju. Má nota bæði rakan og þurran.

SOKKABUXUR
Fyrir þau sem vilja vera í sokkabuxum á fermingardaginn er Oroblu með mjög gott úrval, þar sem öll ættu að geta fundið sér sokkabuxur við sitt hæfi.

ELNETT HÁRSPREY FRÁ
L´ORÉAL PARIS
Elnett spreyið er þekkt fyrir sinn létta og fíngerða úða sem skilur hárið eftir mjúkt og náttúrulegt en samt vel mótað. Þetta goðsagnakennda hársprey frá L’Oréal Paris býður upp á sterka en sveigjanlega festingu sem heldur hárgreiðslunni glæsilegri frá morgni til kvölds – án þess að gera hárið stíft eða þungt. Hvort sem þú ert með fallegar krullur, klassíska slétta greiðslu eða uppsett hár, þá er þetta hársprey ómissandi fyrir fermingardaginn.
REAL TECHNIQUES

Fáðu mjúka, náttúrulega lyftingu á augnhárin og langvarandi lyftingu með auðveldum hætti með augnhárabrettaranum frá Real Techniques. Brettarinn hentar fyrir öll augnform.
SKY HIGH MASCARA PRIMER FRÁ
MAYBELLINE
Ef þú ert að stíga þín fyrstu skref í förðun, þá er Maybelline Sky High Mascara Primerinn frábær kostur.
Sky High Primerinn er auðveldur í notkun, með mjúkri og mildri formúlu sem hentar vel fyrir viðkvæm augu og byrjendur.
Hann tryggir að maskarinn þinn haldist lengur og veitir náttúrulega fallega áferð sem er hvorki of mikil né of lítil – fullkomið fyrir fermingaraldurinn.


FÖRÐUNARBURSTAR
Real Techniques burstarnir eru á meðal mest seldu förðunarbursta í heimi. Þeir eru frábær kostur fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í förðun. Burstarnir eru auðveldir í notkun, burstahárin eru sérstaklega mjúk og eru 100% Cruelty Free.

VÖRUR NÝJAR




MAYBELLINE NEW YORK LASH SENSATIONAL BODY MASKARI
Maskarinn veitir augnhárunum aukið umfang og lyftir þeim samstundis svo augnhárin verða meira áberandi. Maskarinn heldur augnhárunum uppi í allt að 24 klst. Body Curve burstinn er í laginu eins og langt stundarglas og með einstöku tvöföldu helix burstamynstri er hann hannaður til að veita augnhárunum aukið umfang og lyftingu.
BUTTERMELT GLAZE STIX
Stiftin veita silkimjúkan ljóma sem gefur þér „butta glow“ frá toppi til táar. Stiftin eru rík af nærandi cupuacu og kókos’ hnetusmjöri, þau gefa rakaríkan grunn og tryggja mjúka, kremkennda áferð sem bráðnar fullkomlega inn í húðina.
Náðu fram fullkomnum ljóma án þess að nota mikið glimmer, Stiftin eru tilvalin til að lýsa upp hápunkta andlitsins eða byggja upp ljóma yfir stærri svæði eins og viðbein, handleggi og fætur.

LUMI BRONZE STICK
Með kremkennda stiftinu færðu náttúrulegan bronzer ljóma sem lætur húðina líta sólkyssta út og tónar andlitið. Formúlan blandast auðveldlega við húðina og breytist í mjúka púðuráferð sem endist vel. Formúlan inniheldur fíngerðar perlur og er með mjúkum kremgrunni, sem tryggir auðvelda blöndun og þægilega áferð án þess að kekkjast. Skilur húðina eftir mjúka og slétta með fallega ljómandi, sólkysstu útliti.
PARADISE SHADOW STICK
Paradise Le Shadow Stick er kremkennt augnskuggastifti sem blandast auðveldlega og jafnt yfir augnlokið. Formúlan er einföld í notkun, auðvelt er að byggja upp lit og blanda hana fyrir skjóta og þægilega notkun. Stiftið kemur bæði í möttum og ljómandi litum og helst á í allt að 16 klukkustundir.




JELLY JOB
Kóreskt varagloss sem nærir varirnar, veitir þeim mjúka og gelkennda áferð. Formúlan er rík af peptíðum og ljúfum sætum kirsuberjailm sem lyftir mýkt varanna á næsta stig. Það hefur aldrei verið auðveldara að láta aðra verða „jelly“ yfir glerkenndum, sléttum og háglansandi vörum.
WONDER SNATCH POWDER
Hannað til að festa farða, lyfta og lýsa húðina í allt að 16 klst. Létt, laus púðurformúla með háþróaðri tækni sem veitir jafna dreifingu og náttúrulega, hálfgegnsæja þekju. Formúlan er rík af grænu tei og peptíðum sem hjálpa til við að bæta áferð húðarinnar á sama tíma og púðrið lýsir og blandast óaðfinnanlega. Það er hvorki þungt né kekkjast, heldur læsir grunnförðuninni með fullkomlega dreifðri, mjúkri og mattri áferð. Lyftu grunninum þínum á næsta stig og mótaðu útlitið!



FALLEGAR NEGLUR FYRIR FERMINGARDAGINN

Mörg fermingarbörn leggja mikla áherslu á smáatriðin á fermingardaginn og fallegar neglur eru þar engin undantekning. Neglur eru einföld og þægileg leið til að fullkomna útlitið án þess að þurfa að fara á stofu.
Elegant Touch býður upp á fjölbreytt úrval af fallegum og sætum nöglum, allt frá einföldum og klassískum yfir í milda skreytingu sem hentar vel fyrir fermingar. Neglurnar eru auðveldar í ásetningu, sitja vel og eru á góðu verði.
Nýjungin Petir nails frá Elegant Touch er sérstaklega hönnuð fyrir minni neglur og hentar því einstaklega vel fyrir fermingarbörn – fyrir fallegt og snyrtilegt útlit sem endist allan daginn.
NAGLALAKK MEÐ SNYRTISTOFUÁFERÐ

ESSIE GEL COUTURE ELEGANT TOUCH
Fallegar og vel lakkaðar neglur eru alltaf klassík, sérstaklega á fermingaraldri. essie Gel Couture naglalökkin eru frábær kostur fyrir þau sem vilja fá glansandi og fallega útkomu sem minnir á neglur frá snyrtistofu – án þess að fara á stofu.
Gel-línan gefur naglalakkinu extra fallega áferð og gljáa, endist vel og er auðveld í notkun. Fullkomið fyrir hversdagsrútínuna eða sérstök tilefni.
FALLEGT HÁR
Á FERMINGARDAGINN
Það borgar sig að huga vel að hárinu fyrir fermingardaginn. Með réttri umhirðu og vörum sem henta hverri hárgerð er auðvelt að ná fallegri, snyrtilegri og endingargóðri útkomu. Hvort sem hárið er slétt, krullað eða vantar aðeins meiri fyllingu, þá skipta einfaldar og góðar vörur öllu máli.
Mikilvægt er að velja hárvörur sem styðja við náttúrulega áferð hársins og gera það auðveldara í mótun – án þess að þyngja eða flækja rútínuna. Hér eru þrjár vörulínur sem henta vel fyrir fermingardaginn og mismunandi þarfir hársins:
FYRIR LYFTINGU


ELVITAL COLLAGEN LIFTER
Nýja línan Elvital Collagen Lifter er sérstaklega hönnuð til að veita aukna lyftingu og fyllingu í hárið, án þess að þyngja það. Formúlan er rík af kollagenpeptíð og inniheldur trefjar sem bæta þéttleika hársins og gefa því aukna lyftingu í allt að 72 klukkustundir.

L’ORÉAL PARIS ELVITAL COLLAGEN LIFTER SPRAY
L’Oréal Paris Elvital Collagen Lifter Spray er tilvalið fyrir fermingardaginn þegar mikilvægt er að hárgreiðslan haldist falleg og með lyftingu frá morgni til kvölds. Spreyið lyftir og endurlífgar þunnt og slétt hár, sérstaklega á milli þvotta, og hjálpar til við að viðhalda fersku og lifandi útliti. Varan inniheldur kollagenpeptíð sem veita hárinu góða og létta lyftingu samstundis – án þess að þyngja það. Fullkomið til að fríska upp á hárið áður en haldið er í kirkju, myndatöku eða veislu.
FYRIR KRULLAÐ HÁR
GARNIER FRUCTIS METHOD FOR CURLS
Hentar krulluðu og bylgjuðu hári sem þarfnast raka. Vörurnar eru hannaðar til að dekra við krullur, halda þeim mjúkum og líflegum og hjálpa þeim að njóta sín allan daginn – án þess að hárið verði stíft eða þungt.

Sjampó sem er hannað til að dekra við krullað hár! Formúlan er samsett úr 5% Moisture Complex með Hýalúrónsýru og Shea fitusýrum sem veitir krullunum raka í allt að 72 klst.

Hármaski með formúlu sem er samsett úr 13% Moisture Complex með Hýalúrónsýru og Shea fitusýrum sem veitir krullunum djúpan raka í allt að 7 daga.

Sprey sem er hannað til þess að dekra við krullað hár! Formúlan inniheldur Hýalúrónsýru og Shea fitusýrum sem frískar upp á krullurnar og veitir þeim djúpan raka í allt að 48 klst.
FYRIR ÞURRT EÐA ÚFIÐ HÁR
GARNIER FRUCTIS KERATIN SLEEK
Fyrir þurrt eða úfið hár sem þarf mýkt og betri stjórn. Línan hjálpar til við að slétta hárið, minnka frizz og veita fallega áferð sem endist vel, bæði í kirkju, myndatöku og veislu.


Sjampó og næring fyrir þurrt og úfið hár sem veitir hárinu langvarandi ljóma og glans á meðan það hreinsar hárið og hársverðinn á mildan hátt. Gerir hárið sléttara, minnkar úfið hár og eykur glans um 93%.

Leave-in Serum er hár serum fyrir þurrt og úfið hár sem verndar það gegn varma frá hártækjum (allt að 230 gráðum) og minnkar úfið hár.

NÝTT - Garnier Fructis Curls
Method Air Dry Cream er hárkrem sem veitir hárinu raka og kemur í veg fyrir að hárið verði úfið.

NÝTT - Diamond Sleek ShineCoat Smoothing Spray er hársprey sem er sérstaklega fyrir úfið hár, spreytið sléttir úr hárinu og veitir hárinu glans. 230°C hitavörn
FERMINGUNA ILMIR FYRIR
Rétt ilmvatn getur fullkomnað útlitið og gefið aukið sjálfstraust, hvort sem þú vilt ferskan og léttan ilm eða eitthvað aðeins dýpra og elegant. Hér finnur þú falleg ilmvötn fyrir öll sem henta fullkomlega fyrir fermingardaginn.
LANCÔME
LA VIE EST BELLE VANILLE NUDE
Mjúkur og hlýr ilmur með jasmínu, bourbon-vanillu og kremuðu, hvítu muski. Ilmurinn aðlagast þínum líkamsilmi og skapar persónulega, heillandi lykt sem endist allan daginn

VALENTINO BORN IN ROMA PURPLE MELANCHOLIA
Purple Melancholia Donna opnast með safaríkum og hlýjum plómunótum, í hjarta ilmsins er osmanthus sem gefur fágaða dýpt og í grunninn er lúxus vanilluþykkni frá Madagascar.


Purple Melancholia Uomo inniheldur líflegt samspil kardimommu, lavanders og rjómakennds kókosilms sem skapar nútímalegan, sjálfsöruggan og ógleymanlegan ilm.

EMPORIO ARMANI STRONGER WITH YOU POWERFULLY
Stronger With YOU Powerfully er nýjasta viðbótin við vinsælu YOU ilmlínuna. Ilmurinn er reyk kenndur og ávanbindandi með líflegum toppnótum kirsuberja,mandarínu, seiðandi grunni kastaníu, vanillu og amberviðar.

YSL
BLACK OPIUM GLITTER
Dásamleg, sæt útgáfa af vinsæla Black Opium frá YSL. Ilmurinn inniheldur sætan angan sykurpúða og musks sem fangar glitrandi orku og heillandi, mjúkan blæ.
PRADA PARADIGME
Paradigme er frumleg og fáguð ilmblanda sem sveiflast milli hlýju og ferskleika. Ilmurinn inniheldur hlýju viðar og musks sem blandast peru og bergamot sem draga fram ferskleika ilmsins.

PRADA PARADOXE
Paradoxe er vinsælsti dömuilmurinn frá Prada en hann hvetur þig til að vera aldrei neitt nema þú sjálf. Ilmurinn inniheldur algjörlega nýja upplifun með ferskleika neroli blómsins og dýpt frá hlýju musks.


EMPORIO ARMANI POWER OF YOU
Power Of YOU er glæný túlkun frá Armani og er meira en bara ilmur! Ilmurinn sameinar líflegar nótur ástaraldins, vanillu og blóma sem gefa samsetningu sem geislar af sjálfsöryggi og fangar athyglina.

FULLKOMINN LJÓMI Á
FERMINGARDAGINN
Á fermingardaginn vilja mörg að húðin líti aðeins jafnari út – sérstaklega á bringu, höndum og handleggjum.
Þá er sniðugt að velja vörur sem jafna húðlit, gefa fallegan ljóma og jafnvel létta brúnku, án þess að vera of mikið.
Vörur sem gefa létta brúnku eða ljóma eru frábærar lausnir fyrir fermingardaginn. Þær eru auðveldar í notkun og veita skjóta og snyrtilega útkomu og þurfa hvorki mikla fyrirhöfn né flókna rútínu.
Vörurnar sem við mælum með:
BONDI SANDS GRADUAL TAN SKIN PERFECTOR
Upplifðu fullkomna blöndu af ljómandi brúnku sem virkar strax og endist lengi. Formúlan inniheldur shimmer agnir sem gefa húðinni aukinn ljóma alla daga og byggir upp fallega brúnku. Kremið er fullkomið til daglegra notkunar og gefur húðinni þinni aukinn ljóma og mikinn raka.

BONDI SANDS GLO ONE DAY MATTE TAN
Þessa léttu formúlu er auðvelt að bera á húðina sem fær fallega matta brons áferð. Formúlan gefur góða þekju, er smitheld og vatnsheld og er tilvalin fyrir bæði andlit og líkama. Þvæst auðveldlega af með sápu og volgu vatni.

L’ORÉAL PARIS LUMI GLOTION
Fljótandi ljómakrem sem gefur húðinni fallegan sólkysstan ljóma. Fullkomið á bringu og handleggi þegar maður vill aðeins meiri birtu og glans.


Oroblu sokkabuxur
fyrir fermingardaginn
Fallegar sokkabuxur skipta miklu máli þegar fermingarútlitið er fullkomnað. Oroblu býður upp á fjölbreytt úrval af sokkabuxum sem henta jafnt fermingarbarni sem móður, hvort sem leitað er að fínlegum, gegnsæjum sokkabuxum eða með meiri stuðningi.
Sokkabuxurnar frá Oroblu eru ítalskar gæðavörur, þekktar fyrir fallega áferð og þægindi sem endast allan daginn. Fullkomið val fyrir fermingardaginn þegar útlit og vellíðan skipta máli.

Slim Zero Tights eru örþunnar sokkabuxur sem eru nánast ósýnilegar. Eins og þínir eigin leggir nema betri. Saumar eru undir il og sjást því ekki og gefa aukin þægindi.
Secret Shape eru fallegar gegnsæar sokkabuxur sem gefa góðan stuðning og móta líkamann. Sokkabuxurnar eru einstaklega fíngerðar, mjúkar, þægilegar og með flötu mittisbandi.
Fallegar 20 den sokkabuxur sem líta vel út á fæti. Sensuel er ein vinsælasta varan frá Oroblu í heiminum en það er aðalega vegna gæða í garninu sem er fullkomið til daglegra nota.