Nova X-Dry ISL

Page 1


Cleaning solutions for a safer world

Hygiene powder

Hygiene control

High quality

NOVA X-DRY

Nova X-Dry er hreinsiduft til notkunar í gripahúsum fyrir nautgripi, svín, sauðfé, hesta, minka og fiðurfé. Má nota til rakaísogs og til að draga úr fjölgun gerla í umhverfi allra dýra.

» Nova X-Dry hefur mikla ísogsgetu (allt að 200% af nettóþyngd).

» Nova X-Dry skapar dýrum þurrt umhverfi, og efnasamsetning og virkni vörunnar draga úr sýkingahættu.

» Nova X-Dry inniheldur líffræðilega virk efnasambönd sem spilla vaxtarskilyrðum gerla í gripahúsum.

» Nova X-Dry er nánast hlutlaust (pH er um7,7), og er því ekki skaðlegt fyrir húð, liði, júgur eða aðra líkamshluta.

» Nova X-Dry dregur úr hálku á gólfum.

» Nova X-Dry má dreifa í úrgang frá búpeningi án vandamála, varan inniheldur engin efni sem eru skaðleg umhverfinu. – Varan er meðal annars framleidd úr lífmassa.

» Nova X-Dry bætir andrúmsloft í gripahúsum og eyðir ammóníaksgufum.

» Nova X-Dry myndar ekki köggla við venjulega geymslu.

» Nova X-Dry dregur úr tímgunarmöguleikum flugna og annarra skordýra.

» Nova X-Dry má nota við þurrhreinsun hófa.

NOVA X-DRY

• Inniheldur ekki Kloramin T

• Prófað af hlutlausum aðila

• Biðjið um: Ísogspróf Gerlapróf

NOTKUNARSVIÐ

Nautgripir

• Í bása og á alla aðra íverustaði gripanna.

• Gætið þess að dreifa undir júgur.

• Alls staðar á íverusvæðum kálfa og ungviðis.

Svín

• Í stíur.

• Í stíur með grísum.

• Á garða og aðra fóðrunarstaði.

Minkar

• Í búr minkanna.

• Í búr til að tryggja þurrt umhverfi, einnig á fengitíma.

• Á göngusvæði undir búrum og við flórtengingar.

Sauðfé og geitur

• Í stíum og sérstaklega umhverfis drykkjarkör.

Hestar

• Alls staðar í hesthúsum.

• Gætið að drykkjarkörum.

Fiðurfé

• Öll gólf

• Umhverfis drykkjarkör.

• Í hreiður og búr.

SKÖMMTUN

Skömmtun

Nova X-Dry er 50 grömm pr. m2, í 1 – 4 skipti á viku, allt eftir stærð og gerð gripahúsa.

Notið 4 sinnum á viku í byrjun.

Novadan er framsækið danskt framleiðslu og þjónustufyrirtæki, stofnað árið 1980.

Novadan rekur sína eigin fullkomnu rannsóknastofu og verksmiðju, þar sem mikið úrval hreinsi-, þvotta- og sótthreinsandi efna er þróað og framleitt. Vörur okkar eru markaðsleiðandi á þessu sviði.

Novadan er afar hæfur samstarfsaðili við lausn allra verkefna við þrif og sótthreinsun. Við bjóðum landbúnaði, svo og einka- og opinberum aðilum, lausnir á þessu sviði, þar sem hreinsigæðin eru höfð í fyrirrúmi. Okkur er efst í huga að bjóða viðskiptavinum okkar alhliða þjónustu í formi tækniaðstoðar, og heilræða frá reyndum ráðgjöfum.

Sími:

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Nova X-Dry ISL by Novadan - Issuu