Fyrirtækjasvið 66°Norður
Gjafir og gjafakort frá 66°Norður hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina en fyrirtækið býður upp á mikið úrval af vönduðum vörum þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Fyrirtækjaþjónusta 66°Norður sérsníðir tilboð í gjafir að þínum þörfum hverju sinni og öflugt teymi viðskiptastjóra aðstoðar þig við að finna réttu gjöfina fyrir þína starfsmenn.
Gjafakort frá 66°Norður
Gjafakortin henta flestum enda úr miklu að velja. Breitt vöruúrval og fallegar vörur.
Við bjóðum upp á klassísku gjafakortin okkar í kortaumslagi, þar er hægt að bæta við kveðju til starfsmanna.
Stafrænt gjafakort
Nú gefst starfsmönnum einnig kostur á að fá gjafakortið beint í símann.
Starfsmaður hleður kortinu niður í Apple eða Android Wallet og er það því alltaf klárt við höndina.
Fylgihlutir
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af fylgihlutum sem er fullkomið fyrir stóra sem smáa hópa.
Bakpoki 15L
Fjölbreytt litaúrval í boði
Þessi bakpoki er framleiddur úr afgangsefni úr verksmiðju okkar. Efnið að framan, hliðum og að ofan er vatnshelt. Sérstyrkt efni í botni og neophrene í baki svo að hann gefi góða öndun. Vatteraður að innan.
Mittistaska Snyrtitaska
Fjölbreytt
litaúrval í boði
Íþróttataska 35L
Fjölbreytt
litaúrval í boði
Taskan hentar vel sem íþróttataska eða fyrir hvers kyns ferðalög. Efnið í töskunni er vatnshelt, slitsterkt og vatterað að innan sem ver farangurinn fyrir hnjaski. Renndur vasi að framan með endurskini og vatnsheldum rennilás. Þrjú opin hólf innan í töskunni fyrir litla hluti. Stillanleg ól sem hægt er að smella af.